Rýmdi 900 nemenda skóla í skyndi fyrir flóðið

Skyndiákvörðun skólastjóra um að rýma skóla í Nepal skömmu fyrir hamfaraflóðið á landamærum Nepal og Tíbets varð fjölmörgum kennurum og nemendum til lífs.Í viðtali við breska ríkisútvarpið segir Rajendra Dawadi, skólastjóra Tribhuvan Trishuli-skóla í Nuwakot, að honum hafi borist viðvaranir frá fjórum einstaklingum um flóðahættu. Þegar foreldri kom í skólann að sækja barn sitt vegna yfirvofandi flóðs áttaði hann sig á hversu mikil hætta væri á ferð. SAGÐI NEMENDUM OG KENNURUM AÐ HLAUPA UPP Í FJALLSHLÍÐAR Í skyndi ákvað hann að rýma skólann og sagði öllum kennurum og nemendum að hlaupa upp í hlíðar. Þá skipaði hann skólarútum að snúa við frá svæðinu.Yunisha, nemandi við skólann, segir að vinir hennar hafi hjálpað sér að ganga upp í hlíðina fyrir aftan skólann og þau sluppu með skrekkinn.
Rýmdi 900 nemenda skóla í skyndi fyrir flóðið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd