Yfir tuttugu saknað eftir skyndiflóð

Talið er að allt að tuttugu sé saknað eftir að skyndiflóð féll í Miklagljúfursþjóðgarðinum í dag. Skyndiflóðið fór af stað um klukkan hálf tvö að staðartíma í Bright Angel-gljúfrinu og Phantom Ranch.Þjóðgarðurinn hefur biðlað til almennings um upplýsingar um göngufólk sem gæti hafa verið á svæðinu þegar flóðið féll, en ekki liggur fyrir hvort göngufólk hafi lent í flóðinu.Yfirvöld í Arizona og starfsfólk þjóðgarðsins vinna að því að rekja ferðir fólks á svæðinu og rýmingar og viðbragðsaðgerðir standa yfir. 62 hafa verið fluttir frá svæðinu og til stendur að flytja fleiri á brott. Ekki hefur verið greint frá slysum á fólki.Miklagljúfursþjóðgarðurinn er fjórði mest heimsótti þjóðgarður í Bandaríkjunum, með tæpa 4,5 milljón gesta á síðasta ári.
Yfir tuttugu saknað eftir skyndiflóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd