Íslendingar hafi lesið sér til og hafnað framtíð í ESB

Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnenda Áfram Ísland, segir það ánægjulegt að nei-ið hafi haft betur í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við ESB.„Aðalatriðið er að málflutningur okkar var mjög skýr. Að draga upp hvað Evrópusambandið myndi þýða fyrir Íslendinga og ég tel að Íslendingar hafi einfaldlega lesið sér til og skilið það og hafnað þeirri framtíðarsýn,“ segir Halldór.Magnús Árni Skjöld formaður Evrópuhreyfingarinnar segir þjóðina hafa talað. Samstarfið við Evrópusambandið er okkar langsterkasta samstarf við nokkurn aðila.„Þannig að við munum auðvitað bara halda áfram að leggja áherslu á hann í okkar málflutningi til þjóðarinnar og svona koma á framfæri því sem þar er hægt að halda til haga,“ segir Magnús.
Íslendingar hafi lesið sér til og hafnað framtíð í ESB

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd