Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum „alvarlegra“ áverka, sagði lögreglan í Bæjaralandi í yfirlýsingu.