Minnst eins árásarmanns sem framdi skotárás á tónlistarhátíð í Aarau í Sviss, þar sem 22 ára gömul ítölsk kona lét lífið og fimm særðust misalvarlega, er enn leitað. Forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, sagðist fullviss um að svissnesk yfirvöld myndu varpa fullu ljósi á hvað gerðist og finna alla sem bera ábyrgð á harmleiknum.