Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar og þingmaður Viðreisnar, segir að niðurstaðan verði virt.„Þjóðin svaraði þeirri spurningu hvort hún hefði áhuga á því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið neitandi og það er bara skýr niðurstaða. Hana bera að virða og að sjálfsögðu verður það gert. Og það er bara ástæða til þess að þakka fyrir kosningabaráttuna og óska nei-hreyfingunni til hamingju með sigurinn,“ segir Pawel.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur sagt að Alþingi fái að ákveða næstu skref. Pawel telur ekki að ákvörðun um að draga umsókn Íslands til baka verði tekin á fundi utanríkismálanefndar.„Ég þykist nú vita að þa