Alvarlegt vinnuslys varð á sveitabænum Brekkugerði 4. ágúst síðastliðin og tókst ekki að ná í Neyðarlínuna þegar kalla átti eftir hjálp. Sveitarstjórn Fljótsdalshrepp ákvað í kjölfarið að beina því til dómsmála- og innviðaráðherra að þrýsta á tafarlausar úrbætur á fjarskiptakerfinu. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.Þeir hafa einnig skorað á umhverfis- og samgöngunefnd að kalla forstjóra símafyrirtækja á sinn fund og krefja þá skýringa hvers vegna var farið gegn öllum þeim viðvörunarbjöllum sem hringdu í aðdraganda útfösunar 2G og 3G fjarskiptakerfanna.„Mér finnst það nú bara eðlilegt að þeir sem hafa eitthvað vægi eða geti haft eitthvað um þessi mál að segja að þeir svari fyrir. Sko, dreifisvæðið hefur minnkað, það er alveg ljóst. Það verður öllum alveg ljóst sem keyra um vegi landsi