Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna.