Haraldur Noregskonungur verður jarðaður 9. september klukkan 13 að norskum tíma, 11 að íslenskum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku hirðinni. Kista konungs verður flutt úr sal konungshallarinnar yfir í kapellu hallarinnar þar sem almenningur getur komið og vottað virðingu sína. Haraldur lést á föstudagsmorgun, 89 ára að aldri. Hákon sonur hans varð Hákon áttundi Noregskonungur við andlát hans og Ingiríður Alexandra krónprinsessa og ríkisarfi. Minningarguðsþjónustur um Harald Noregskonung voru haldnar í nær öllum dómkirkjum landsins í morgun. epa13199764 People pay their respects and sign the condolence register ahead of a memorial service for the late King Harald V of Norway at the Norwegian Cultural Center, also known as the Seamen's Church, in Rotterdam, the Netherlands, 30