Stjórnmálafræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur eru sammála um að þjóðin hafi fylkt sér að baki sínum stjórnmálaleiðtogum þegar afstaða var tekin til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur rekur niðurstöðuna helst til þriggja þátta.„Í fyrsta lagi er í rauninni engin efnahagsleg nauðsyn að ganga í Evrópusambandið fyrir Ísland. Oftast er það nú ástæðan fyrir að umsóknarríki sækir um. Og ekki heldur hvað varðar öryggis- og varnarmálin, það virðist ekki vera bein tenging þar heldur, að það sé einhver þörf á að skoða þennan möguleika,“ segir Vilborg.„Og svo vitum við að það er misjöfn sýn innan flokkanna á Evrópumálin, en hérna var mjög kosið eftir því hvort þú tilheyrir stjórnarflokki eða stjórnarandstöðuflokki.“Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmál