Ísland áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins

Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur verið í skeytasambandi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar varð ljós.Þetta kemur fram í skilaboðum Mariu Tomasik, talskonu Costa til fjölmiðla síðdegis. VILJI TIL AÐ EFLA SAMSTARF ÍSLANDS OG EVRÓPUSAMBANDSINS Í skilaboðunum segir ennfremur að Costa hafi ítrekað þá virðingu sem Evrópusambandið beri fyrir lýðræðislegu vali Íslendinga og Ísland sé áfram eitt af nánustu samstarfsríkjum Evrópusambandsins, ekki síst í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.Talskona Costa segir ennfremur að leiðtogarnir tveir hafi staðfest vilja sinn til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins.Fréttastofa RÚV kallaði í dag einnig eftir viðbrögðum frá framkvæmdastjórn ESB. Talsmaður þar
Ísland áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd