Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna eru sammála um að ríkisstjórnin þurfi að snúa sér að því að lækka vexti og verðbólgu til að skapa sátt í íslensku samfélagi.„Nú þarf að mynda þjóðarsátt um að ná niður vöxtum og verðbólgu og verðtryggingu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.Hún segir að ná þurfi þjóðinni saman um þetta. „Vegna þess að það eru að mínu mati skilaboð þjóðarinnar. Hún er ekki til í þessa vegferð og hafnar málflutningi þess efnis,“ segir hún.Lilja segir niðurstöðuna sigur unga fólksins en „þungt högg fyrir ríkisstjórnina“. ÍSLAND SNÚI EKKI BAKI VIÐ UMHEIMINUM Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að niðurstaðan sé áfall fyrir ríkisstjórnina sem hún segir að hafi lagt allt undir í málinu.„Nú er