Nokkrir fórust þegar farþegaferju hvolfdi undan ströndum tyrkneska lýðveldisins Norður-Kýpur í morgun, skömmu eftir að hún lagði úr höfn.Kýpur. Mynd úr safni.AP / Petros KaradjiasYfirvöld greina ekki frá nákvæmum fjölda látinna, 267 hafa verið um borð í ferjunni sem var á leið frá hafnarbænum Kyreníu til tyrknesku hafnarborgarinnar Taşucu í blíðskaparveðri. Um það bil 100 farþegum hefur þegar verið bjargað og komið á land. Ferjan er á hvolfi, er smám saman að sökkva og björgunaraðgerðir standa yfir. Í fréttum tyrkneska sjónvarpsins má sjá fólk íklætt björgunarvestum sitja á botni ferjunnar og fjölda smábáta allt um kring. Sjúkrahús hafa verið sett í viðbragðsstöðu að sögn yfirvalda.