Margir erlendir fjölmiðlar hafa gert niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar skil í morgun. Aðdragandinn er tíundaður og mögulegar afleiðingar. Fréttamenn Norska ríkisútvarpsins fylgdust grannt með framvindu mála í nótt, birtu tölur reglulega og greindu frá niðurstöðunni þegar hún lá fyrir. Ríkisstjórn Jonasar Gahr Støre ætlar ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu á þessu kjörtímabili og möguleg innganga Íslands í sambandið hefði getað einangrað Noreg innan EES. AFP-fréttaveitan segir niðurstöðuna hljóta að vera vonbrigði fyrir Evrópusambandið sem virtist reiðubúið til málamiðlana í erfiðum málum til að liðka fyrir inngöngu. Greinandi YLE segir úrslitin vera álitshnekki fyrir sambandið, meirihluti Íslendinga treysti því ekki nægilega eða telji hagsmunum ekki nægilega borgið innan þess.