Minningarguðsþjónustur um Harald Noregskonung voru haldnar í nær öllum dómkirkjum landsins í morgun.Athöfn verður í Niðarósdómkirkju síðdegis. Konungsfjölskyldan mætti til guðsþjónustu í Asker-dómkirkju, sem er nálægt Skaugum, opinberu heimili krónprinsfjölskyldunnar. og hefur því iðulega verið notuð sem heimakirkja konungsfjölskyldunnar.Öll konungsfjölskyldan var viðstödd athöfnina að undanskilinni Mette Marit drottningu, sem komst ekki af heilsufarsástæðum. Hún undirgekkst lungnaskiptaaðgerð fyrr á árinu og því óttast um smit. Almenningur var hvattur til að vera snemma á ferð til að tryggja sér sæti og langar raðir mynduðust við dómkirkjurnar.Norska ríkisútvarpið sendi beint út frá dómkirkjunni í Osló þar sem forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre var viðstaddur auk fleiri ráðherra. Pål Kri