Hætt við árlega götuhátíð vegna rigningarveðurs

Rigningarveður hefur leitt til þess að árlegri útihátíð á Nørrebrogötu í Kaupmannahöfn hefur verið aflýst.Á Strikinu í Kaupmannahöfn, þekktustu göngugötu Danmerkur.RÚV / Hallgrímur IndriðasonÁ þesum degi er lokað fyrir umferð bíla og hjólreiðafólks svo öryggi gangandi vegfarenda sé tryggt. Frá þessu er greint á Facebook-síðu hverfisráðs Norðurbrúar sem kveðst harma að ekkert verði af viðburðinum.Spáð er úrhellisskúrum og í morgun hefur rignt inn afboðunum frá þátttakendum, þar á meðal krítarlistamönnum og jógakennurum, enda þurrviðri þeim nauðsynlegt. Auk þess óttast hverfisráðið að hjólafólk og bílstjórar átti sig ekki á lokuninni verði fámenni á götunni. Ekkert verður því af bíllausu hátíðinni á Nørrebrogötu þetta árið.
Hætt við árlega götuhátíð vegna rigningarveðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd