Í dag má búast við hæglætisveðri víðast hvar á landinu, þó með skúrum á víð og dreif. Á morgun verður óstöðugra loft og á morgun og þriðjudag má búast við skúradembum á Suðurlandi, að því er fram kemur í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Hæglætisveður í dag og skúrir á víð og dreif, einkum síðdegis. Norðaustan gola eða kaldi á morgun og heldur óstöðugra loft yfir landinu og reikna má með talsverðum skúradembum sunnanlands. Hægur vindur víðast hvar á þriðjudag og áfram skúradembur sunnanlands, en annars úrkomulítið og víða bjart. Það verður því fremur svalt og óstöðugt loft yfir landinu næstu daga og hámarkshiti í kringum 13 stig.