Skotárás á reiftónlistarhátíð

Einn var drepinn og fimm eru særð eftir skotárás á reif-tónlistarhátíð í norður Sviss í nótt. Svissneska dagblaðið Blick greindi fyrst frá árásinni en ekki hefur verið greint frá því hvort árásarmaðurinn eða mennirnir hafi verið handteknir.Lögregluyfirvöld í Aarau greindu frá umfangsmiklum aðgerðum og óskuðu eftir ljósmyndum og myndskeiðum frá vitnum að árásinni.Um 3500 gestir voru á Ararauer reif tónlistarhátíðinni. Talskona lögreglunnar segir að skotið hafi verið úr byssu á kappreiðabraut þar sem hátíðin er haldin.Fréttin verður uppfærð.
Skotárás á reiftónlistarhátíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd