Óljóst hvað olíusamningurinn við Bandaríkin feli í sér

Nýfrágenginn olíusamningur milli Bandaríkjanna og Venesúela hefur verið gagnrýndur meðal Venesúelabúa fyrir skort á gagnsæi og ekki þykir að fullu ljóst hvað samningurinn feli í sér.AFP fréttaveitan segir að margir hafi tjáð áhyggjur sínar á samfélagsmiðlum þegar fréttist af samningnum, þar á meðal stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. Fólk hafði áhyggjur af fullveldi landsins og litlum ávinningi af samningnum með miklum pólitískum kostnaði.Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á föstudag að Bandaríkin hefðu gert samning um 65 milljarða olíutunna af olíuforða Venesúela og sagði samninginn vera stærsta olíusamning sögunnar.Settur forseti Venesúela, Delcy Rodriguez, segir að Venesúela haldi eignarhaldi og fullveldi yfir olíuauðlindum sínum. Þessu greindi hún frá í ræðu á ríkisfjölmiðli
Óljóst hvað olíusamningurinn við Bandaríkin feli í sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd