Zaporizhzhia-kjarnorkuverið í Úkraínu hefur verið án rafmagns í rúma viku. Neyðarrafalar eru knúnir áfram með dísilolíu svo hægt sé að kæla sex kjarnaofna kjarnorkuversins.Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir að einungis séu dísilbirgðir til tíu daga í kjarnorkuverinu. Forstjóri stofnunarinnar Rafael Grossi segir að dísilolían sér gríðarlega mikilvægur orkugjafi þegar kjarnorkuverið er án rafmagns, en kjarnorkuverið hefur reglulega verið án rafmagns vegna árása norðanmegin við Dnipro-fljótið.Alþjóðakjarnorkumálastofnunin reynir nú að semja um vopnahlé svo hægt sé að gera við tjón af völdum árása á orkuinnviði.Rússar tóku yfir kjarnorkuverið í mars 2022. Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor aðra um árásir nærri kjarnorkuverinu við bakka Dnipro-árinnar, sem markar víglínuna milli stríða