Hákon Noregskonungur minntist föður síns Haraldar í hjartnæmri minningarræðu frá konungshöllinni í gær sem sýnd var í beinni útsendingu á norska ríkisútvarpinu. Þetta er fyrsta ræða Hákons eftir fráfall Haraldar sem lést á ríkisspítalanum í Osló í gærmorgun 89 ára að aldri.Hákon sagði fjölskylduna syrgja en á sama tíma veitti það þeim huggun og styrk að sjá svo marga syrgja með þeim. Hann sagði að það hafi verið áhrifamikil og hjartnæm upplifun að sjá svo marga leggja leið sína á Hallartorgið og skilja eftir blóm, kveðjur og kerti. MIKILL FJÖLSKYLDUMAÐUR SEM SAMEINAÐI ÞJÓÐINA Hákon sagði Harald hafa reynst sér og Mörtu systur sinni góður faðir og barnabörnunum hlýr og fyndinn afi. Hann sagði að Haraldur hefði einnig verið Sonju drottningu góður eiginmaður og í dag hefðu þau fagnað 58 ár