Fyrstu tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslunni vegna áframhaldandi viðræðna við Evrópusambandið voru kynntar um klukkan 23 í kvöld.Tölurnar komu úr Suðurkjördæmi þegar talin höfðu verið tæplega 10 þúsund atkvæði. Já sögðu 3.901, eða 40,2%, en nei sögðu 5.806, eða 59,8%.