Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út klukkan hálf 6 í dag vegna karls og konu í sjálfheldu í Reynisfjöru. Fólkið hafði gengið meðfram klettum í fjörunni en ekki gætt að sér þegar tók að flæða að.Björgunarsveitin Víkverjar í Vík í Mýrdal var kölluð út fyrst en skömmu síðar voru fleiri sveitir á Suðurlandi, frá Kirkjubæjarklaustri að Árborgarsvæðinu, boðaðar út, auk björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum.Fólkið var staðsett með dróna og skömmu síðar var Þór kominn að Reynisfjöru ásamt léttum gúmbát sem Víkverji kom á frá Vík. Hægt var að lenda bátnum í fjörunni skammt frá fólkinu sem var leiðbeint af áhöfn Þórs að bátnum.Fólkið var heilt á húfi og flutt aftur í Reynisfjöru. ANNAÐ ÚTKALL SKÖMMU SÍÐAR Skömmu síðar barst aðstoðarbeiðni frá einstaklingi í sjálfheldu á Hafnarfjalli.