Aukin hætta á skriðum og flóðum

Nærri þrjú þúsund er enn saknað eftir hamfaraflóð á landamærum Nepals og Tíbets. Staðfest er að tæplega sjö hundruð hafi látist. Utanríkisráðherra Nepals segir alþjóðlegt átak þurfa til að takast á við loftslagsbreytingar.Björgunarlið og hermenn leita við erfiðar aðstæður að fólki sem gæti hafa lifað hörmungarnar af. Vísindamenn óttast að lón sem mynduðust í flóðinu bresti hvað úr hverju. Yfirvöld vara við aukinni skriðu- og flóðahættu í Nepal þar sem jarðvegur er blautur og ótraustur.Utanríkisráðherra Nepal hvatti umheiminn til að hefja alþjóðlegt átak til að takast á við loftslagsbreytingar á blaðamannafundi í dag.Jöklar í Himanlaya-fjallgarðinum minnka og þynnast hratt og eru veikburðari en áður, vegna hlýnunar jarðar.
Aukin hætta á skriðum og flóðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd