Mikill og langvarandi ágreiningur líkleg skýring góðrar kjörsóknar

Góð kjörsókn framan af degi sýnir hversu heitt ágreiningsmál Evrópusambandsaðild er, segir stjórnmálafræðingur. Hún ræður þó ein og sér ekki úrslitum.„Það lítur allt út fyrir að kjörsókn verði með besta móti og það er kannski ekki að undra. Þetta er búið að vera pólitískt ágreiningsmál um langt skeið og áhugi landsmanna virðist vera töluvert mikill á því að taka þátt í þessum kosningum,“ segir Hafsteinn Birgir Einarsson, nýdoktor í stjórnmálafræði.Frá stofnun lýðveldis hafa Íslendingar þrisvar gengið að kjörklefanum í þjóðaratkvæðagreiðslu, síðast árið 2012.Hafsteinn segir að það merkilegasta við kosningarnar nú sé að þær snúist aðeins um eitt mál en ekki fleiri líkt og áður.„Og auðvitað það sem gerir þær mest spennandi er að kannanir hafa bent til þess að hér sé mjög mjótt á munum. Og það
Mikill og langvarandi ágreiningur líkleg skýring góðrar kjörsóknar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd