Landskjörstjórn segist hafa orðið vör við að óvenjumargir deili ljósmyndum af kjörseðlum sínum í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Framkvæmdastjóri segir fólk hvatt til að gera það ekki en lögin kveði ekki á um refsingu eða annars konar afleiðingar fyrir að gera slíkt.„Þetta er óvenjumikið núna. Við höfum bent á að að leynd atkvæðagreiðslu er ein af grundvallarreglum lýðræðislegra kosninga,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar.Hún segir þetta erfitt að eiga við og það hafi í raun engar afleiðingar að birta myndir af kjörseðlum.„Þetta er ekki skírt bannað í kosningalögum en það er hins vegar kveðið á um það í að kosningar eigi að vera leynilegar, þannig þetta rekst svolítið á hvort annað. Lögin kveða ekki skírt á um að þetta sé refsivert