Vill taka fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar fyrir áramót

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir þróun verðbólgunnar mikil vonbrigði en hún hefur ekki mælst hærri í um tvö ár. Erlendar hækkanir svo sem olíuverðshækkanir hafi haft veruleg áhrif en að sama skapi sé undirliggjandi verðbólga að hreyfast í rétta átt. EKKI AUÐVELT AÐ AFNEMA VERÐTRYGGINGU Alþingi kemur saman á ný eftir tíu daga og var setning Alþingis á dagskrá ríkisstjórnarfundar í gær. Eitt þeirra frumvarpa sem lagt verður fram á haustþingi miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar.„Þetta er mjög erfitt umhverfi sem við höfum verið í en það er ekki auðvelt að afnema þetta. Við munum fara eitt skref núna með frumvarpið sem verður lagt fyrir áramót og mun snúa að greiðslum inn á lán og fleira. Ég ætla ekki að tjá mig í smáatriðum um það en við munum þurfa að gera þetta í góð
Vill taka fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar fyrir áramót

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd