Lok talningar í Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi gætu orðið klukkan 7 í fyrramálið. Þetta kemur fram í svari frá yfirkjörstjórnum í kjördæmunum við fyrirspurn fréttastofu. Bæði kjördæmin eru stór og tíma tekur að koma atkvæðum úr kjördeildum í talningu hjá yfirkjörstjórnum.Kjörstaðir loka víða ekki fyrr en klukkan tíu í kvöld. Suðurkjördæmi stefnir á að vera fyrst með fyrstu tölur klukkan hálf ellefu. Yfirkjörstjórnir í Reykjavík, Norðaustur- og Norðvesturkjördæmunum telja fyrstu tölur væntanlegar frá þeim um miðnætti.Ólöf Magnúsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu borgarstjórnar, segist vonast til þess að fyrstu tölur verði lesnar upp í kringum miðnætti, en það gæti þó dregist.Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi eru væntanlegar strax á ellefta tímanum en annarsstaðar frá upp úr miðnætti. S