Í myndbandi sem birtist á Facebook-síðu Skógræktarfélags Eyfirðinga er athygli vakin á slæmri umgengni í Kjarnaskógi. Dósir sjást á víð og dreif og segir Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, að hann hafi þurft að byrja daginn á því að þrífa ælu af skiptiborði, sem sé svo notað til þess að skipta um bleyjur á ungabörnum.Ingólfi var frekar mikið niðri fyrir í myndbandinu sem hann setti á Facebook og sagði þá sem stæðu að þessari umgengni ekki velkomna aftur í Kjarnaskóg og að þeir mættu hafa ævarandi skömm fyrir.Ingólfur sagði í samtali við fréttastofu að þetta fylgdi stundum haustinu og skólabyrjun. Krakkar hittust í skóginum að kvöldlagi og héldu skemmtanir. Þetta væri því miður ekki að gerast í fyrsta skipti. Hann grunar að um skólakrakka væri að ræða. Hann s