Hákon konungur heldur minningarræðu um föður sinn í dag

Hákon VIII Noregskonungur heldur í dag minningarræðu um föður sinn Harald V Noregskonung sem lést í gær.Í tilkynningu hallarinnar segir að ræða Hákons verði send út í sjónvarpi klukkan sjö í kvöld að norskum tíma, það er klukkan fimm síðdegis að íslenskum tíma.Norðmenn hafa syrgt kóng sinn í dag og í gær. Margir hafa farið með blómvendi að höllinni og þar var fjöldi manns samankominn þegar kista konungs kom í höllina.Almenningi gefst síðar kostur á að ganga að kistu konungs í kapellu hallarinnar.Minningarguðsþjónustur verða haldnar í kirkjum víða um Noreg á morgun, þar á meðal í öllum tólf dómkirkjum landsins. Þær verða allar opnar almenningi. Norska ríkisútvarpið, NRK, sýnir beint frá minningarguðsþjónustu í dómkirkjunni í Ósló klukkan níu í fyrramálið að íslenskum tíma og frá minningargu
Hákon konungur heldur minningarræðu um föður sinn í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd