Tugir látnir eftir árásir á útjaðar Kænugarðs

Í það minnsta 37 hafa látið lífið eftir drónaárás Rússlandshers á birgðastöð í útjaðri Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í nótt. Eldur kviknaði eftir árásina og í kjölfarið urðu kröftugar sprengingar. Yfirvöld segja hundruð íbúa hafa verið flutt á brott.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir í færslu á X að skotfæri hafi verið geymd í birgðastöðinni.Þeir sem hafi leyft því að gerast þurfi að vera dregnir til ábyrgðar. Alls ekki megi geyma skotfæri nærri heimilum eða íbúabyggð. Zelensky segir að einn hinna látnu sé sveitarstjóri í Dmytrivka sem hafi komið að björgunarstörfum á vettvangi. SAMBÆRILEGT ATVIK Í JÚLÍ Saksóknarar í Úkraínu segja sprengfima hluti hafa verið geymda í birgðastöðinni og hafa hafið rannsókn á lögmæti þess. Þeir ætla að kanna hvort eigandinn hafi haft tilskilin leyf
Tugir látnir eftir árásir á útjaðar Kænugarðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd