Aukin rafleiðni í Múlakvísl bendir til þess að lítið jökulhlaup sé hafið. „Hún hefur verið að aukast hægt og bítandi síðastliðna þrjá sólarhringa og mælist núna um 250 µS/cm sem eru fyrstu viðvörunargildin okkar. Venjulega er hún í kringum 100,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.„Vatnshæð hefur ekki aukist í ánni en á vefmyndavélum sést að hún hefur aðeins dreift sér í aðeins fleiri ála. Hún á það til að grafa sig frekar en að vatnshæðin hækki.“ VARAÐ VIÐ GASMENGUN Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að gasmengun mælist í grennd árinnar og ferðamenn því hvattir til að sýna aðgát.„Þeir sem verða varir við einkenni sem gætu bent til gasmengunar, eins og sviða í augum eða koki, eru hvattir til að yfirgefa svæðið,“ segir í tilkynningunni. JARÐH