Kjördagur er runninn upp og munurinn á hópi þeirra sem hyggjast kjósa já og þeirra sem hyggjast kjósa nei varðandi áframhald aðildarviðræðna við ESB mælist afar lítill. „Ég spái því að þetta verði rosalega spennandi og skemmtileg kosninganótt,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði.