Það munar innan við prósentustigi á já- og nei-fylkingunum í síðustu könnun Maskínu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni, sem framkvæmd var í gær, sögðust 50,4% ætla að segja já, en 49,6% sögðust ætla að segja nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.Maskína greindi frá niðurstöðum könnunarinnar í gærkvöldi. Í tilkynningu segir að munurinn sé innan vikmarka og ómögulegt að segja til um úrslitin.Svarendur í könnuninni voru 3.274. Af þeim sögðust 1.523 ætla að segja já, en 1.500 nei. 170 sögðust óákveðnir og 82 vildu ekki svara. KÖNNUN MASKÍNU 28. ÁGÚST 2026 Hvernig hyggstu ráðstafa atkvæði þínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þar sem spurt verður: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? JÁ NEI 50% 50,4% 49,6%