Aukin rafleiðni í Múlakvísl bendir til þess að lítið jökulhlaup sé í gangi. Rafleiðnin hefur aukist jafnt og þétt í ánni undanfarna sólarhringa og mælist nú um 240 µS/cm. Leiðnimælingar gefa vísbendingar um magn jarðhitavatns í ám. Veðurstofan greinir frá þessu á vef sínum.Vatnshæð hefur enn sem komið er ekki hækkað en ekki er útilokað að það geti gerst á næstu dögum.„Gasmengun mælist á svæðinu og eru ferðamenn hvattir til að sýna aðgát. Þeir sem verða varir við einkenni sem gætu bent til gasmengunar, eins og sviða í augum eða koki, eru hvattir til að yfirgefa svæðið.“Lítið jökulhlaup hófst í Múlakvísl 18. ágúst og stóð í nokkra daga. Þá mældist töluverð gasmengun og há rafleiðni. Hún náði yfir 500 µS/cm þann 19. ágúst.