Í dag fá Íslendingar tækifæri til þess að greiða atkvæði með því að hefja viðræður um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Evrópusambandið er samstarf 27 fullvalda ríkja sem grundvallast á mannréttindum, lýðræði, frelsi, jafnrétti og réttarríki. Samskipti ríkjanna byggjast á fyrirsjáanlegum reglum og gagnkvæmri virðingu fyrir sjálfstæði þeirra, ólíkum hagsmunum og menningarlegri sérstöðu. Að baki liggur sú sannfæring að friður, frelsi...