Heart 2 Heart flutti lagið Nei eða já í Söngvakeppni Sjónvarpsins 1992. Nei eða já var sigurlag keppninnar og framlag Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, sama ár. Heart 2 heart var hljómsveit sem sett var á fót í kringum framlag Íslands í Eurovision söngvakeppninni en var í raun hljómsveitin Stjórnin eftir mannabreytingar.Söngkonur Stjórnarinnar eru þær Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ármannsdóttir. Lagið er eftir Friðrik Karlsson og Grétar Örvarsson. Textinn er eftir Stefán Hilmarsson. Eflaust raula margir landsmenn þennan fræga texta í dag:Nei eða já – nú eða þá.Aldrei mér tekst að taka’ af skarið,vakin og sofin égvelti þér endalaust fyrir mér.Nei eða já – af eða á.Erfitt er oft að finna svariðþó á ég von á þvi að finna það hjá þér.