Spilun á lögum tónlistarkonunnar og goðsagnarinnar Dolly Parton í streymi margfaldaðist á þriðjudaginn eftir að greint var frá andláti hennar.AP fréttastofan greinir frá því að samkvæmt gögnum frá Luminate, sem safnar gögnum um hlustun á tónlist, var lögum hennar streymt 30,5 milljón sinnum í Bandaríkjunum daginn sem hún dó, samanborið við 1,2 milljón streymisspilanir deginum áður.Á heimsvísu fóru spilanir á lögum hennar úr 2,5 milljónum spilana á mánudeginum og upp í 41,8 milljónir daginn sem hún dó.Og spilun á lögum Dollyar átti eftir að aukast enn meira.Á miðvikudeginum, daginn eftir andlát Dollyar, var lögum hennar streymt alls 79,7 milljón sinnum á heimsvísu og tónlist hennar var mest spilaða tónlist nokkurs listamanns þann dag.Þetta voru mest spiluðu lög Dollyar í Bandaríkjunum: 1.