Undanfarnar vikur höfum við heyrt gylliboð já-sinna um lægri vexti og verðbólgu – en líka að við munum komast hratt út úr þeim vanda sem til staðar er á húsnæðismarkaði, ef Ísland gangi í Evrópusambandið. En þegar við horfum til landa sambandsins sjáum við fljótt að þar er ekki að finna neina lausn, því fer fjarri.