Bandaríkjastjórn og bráðabirgðastjórn Venesúela hafa gert samning sem veitir Bandaríkjunum meirihlutastjórn yfir ríflega 65 milljörðum tunna af olíuforða landsins.Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að samningurinn sé „stærsti olíusamningur sögunnar“. Með honum tvöfaldist olíuforði Bandaríkjanna, olíubirgðir eigi eftir að aukast og bensínverð eigi eftir að lækka í Bandaríkjunum vegna samningsins. Forsetinn greindi frá samningnum í færslu á Truth Social. SAMNINGURINN SAGÐUR STUÐLA AÐ ENDURREISN HAGKERFISINS Utanríkisráðherra Bandaríkjanna Marco Rubio segir að samningurinn sé hagstæður fyrir bæði Bandaríkin og Venesúela. Með samningnum aukist einkafjárfestingar upp á 100 milljarða dollara í Venesúela, sem mun stuðla að endurreisn hagkerfisins í landinu.Delcy Rodriguez, settur forseti Ven