Mykhailo Fedorov, fyrrum varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur þegið starf sem ráðgjafi ítalska varnarmálaráðherrans Guido Crosetto.Fedorov segir að hann ætli að aðstoða Ítalíu við að þróa nútímahernaðartækni, vinna að betrumbótum í varnarmálageiranum og aðlaga hann að nýjum áskorunum í öryggismálum. Hann ætlar þó að sinna starfinu frá Kyiv.Ítalska varnarmálaráðuneytið segir í tilkynningu að ráðningin sé mikilvægt tækifæri fyrir Ítalíu og þessu nýja samstarfi við reynslumikinn samstarfsaðila sé fagnað.Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti vék Fedorov úr embætti varnarmálaráðherra í júlí. Samband Fedorovs við þáverandi yfirmann úkraínska hersins, Oleksandr Syrsky, var stirt og það var sögð ástæða þess að hann var rekinn.Þetta vakti hörð viðbrögð í Úkraínu og hrinti af stað miklum mótmælum um land a