Yfir 2.400 saknað í Nepal og Tíbet

Yfir 2.400 er nú saknað í Nepal og Tíbet og tæplega 600 hafa fundist látnir eftir hamfaraflóðið sem féll við landamæri Nepal og Tíbets.Fjöldi þeirra sem saknað er hækkaði snarlega þegar ljóst var að 933 starfsmanna vatnsaflsvirkjunar væri einnig saknað, auk ferðamanna og pílagríma. Alls er 1.924 saknað í Nepal, þar af 517 ferðamanna.Samkvæmt kínverskum stjórnvöldum eru sjö látnir og 554 er saknað í Tíbet. Erfitt er að fá nákvæmar upplýsingar um ástandið á flóðasvæðunum í Tíbet. Erlendir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að svæðinu og kínversk stjórnvöld greina frá upplýsingum um stöðu björgunaraðgerða.Flóðahætta ógnaði björgunarfólki í dag svo gera þurfti hlé á björgunaraðgerðum um tíma en þeim var svo framhaldið. Björgunarfólk vinnur baki brotnu við björgunaraðgerðir beggja megin landamæ
Yfir 2.400 saknað í Nepal og Tíbet

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd