Hátíðlegt var í Hörpu í kvöld þegar Klassíkin okkar fór fram í ellefta sinn. Hún hefur fest sig í sessi sem ómissandi upptaktur að nýju starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands.Dagskráin var fjölbreytt og sveiflaðist á milli líflegs hljómsveitarleiks, tilfinningaríkra söngva, stórbrotinna aría og ástríðufulls píanóleiks. Hljómsveitarstjóri var Daníel Bjarnason. Kynnar kvöldsins voru Halla Oddný Magnúsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.Ásamt því að kynna dagskrána tók Unnsteinn Manúel lagið Anchor Song eftir Björk Guðmundsdóttur undir hljóðfæraleik málmblásara Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Lagið kom fyrst út á plötu hennar Debut árið 1993.