Hvergi á landinu hafa risið eins mörg stoðvirki og í hlíðunum ofan Siglufjarðar. Leiðigarðarnir eru þrír og þvergarðarnir fimm. Þeir hafa staðið sína pligt undanfarna áratugi og beint ofanflóðum, sem eru tíð við fjörðinn, fram hjá byggðinni.Sigurður Benediktsson, íbúi á Suðurgötu á Siglufirði, þekkir það vel en hann lenti í snjóflóði skammt frá heimili sínu fyrir tíma varnargarðanna.„Við vorum einu sinni á ferð í hádeginu á bílnum okkar og þá kom snjóflóð í gegnum ytra húsið hérna í Suðurgötu 76 og fór með bílinn niður fyrir veg. En það slapp nú alveg, það slasaðist enginn,“ sagði Sigurður í kvöldfréttum RÚV í kvöld. ÓVÍST HVORT VARNARGARÐARNIR HALDI Sigurður býr nú inni á því sem kallað er svæði C og er syðst í bænum, en þar eru 16 íbúðarhús og er varnargarður fyrir ofan. Óvíst er hvað