Sögulegu tímaskeiði lokið og nýtt að hefjast

Haraldur Noregskonungur lést í morgun, 89 ára að aldri. Hann var konungur í rúm 35 ár og þótti framsækinn, mildur og alþýðlegur. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við konungshöllina í Osló og samkvæmt norska ríkisútvarpinu voru um þrettán þúsund þar undir kvöld þegar kista konungs kom í höllina. Margir hafa minnst hans sem konungs fólksins.Í spilaranum hér að ofan má sjá umfjöllun um andlát Haraldar Noregskonungs í kvöldfréttum sjónvarpsins.
Sögulegu tímaskeiði lokið og nýtt að hefjast

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd