Leiftrandi fjörug hljómsveitartónlist og tregafullir söngvar í bland við ástríðufullar aríur, hetjusöngva og kraftmikinn píanóleik í Klassíkinni okkar sem er í beinni útsendingu frá Hörpu. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Kynnar kvöldsins eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.