Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýliðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð. Undir lok mótsins sýndu sum hross merki um hita og veikindi.Á vef MAST segir að sýnataka hafi farið strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda. Niðurstöður voru neikvæðar.Skoðað var hvort veikindin tengdust fóðri. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan mótinu lauk og hættan því líklega liðin hjá. ÍSLENSKA STOFNINUM STAFAR EKKI HÆTTA AF „Sem betur fer á alþjóðlegum mótum sem þessum þá er almenn regla að hýsa hross frá hverju landi aðskilin og líkamshiti þeirra er mældur tvisvar á dag. Þannig uppgötvast þessi veikindi snemma og það tekst að því er virðist vera að takmarka þau við afmarkaðan hóp,“ segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælast