Veiðitímabil rjúpu hefst 23. október í vetur. Tímabilið er misjafnlega langt innan hvers veiðisvæðis. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í ár.Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil ársins.Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins er ítrekað að sölubann á rjúpum er í gildi. Það á bæði við um sölu til endursöluaðila og annarra.Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila sem annarra.„Er veiðimönnum bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru þeir hvattir til góðrar umgengni um náttúru landsins,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins.