Alveg hægt að finna þær upplýsingar sem maður þarf þó að „margir séu að tala með rassgatinu“

Íslendingar ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa hvort þeir vilji hefja aðildarviðræður við ESB eða ekki. Um 20% landsmanna hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar og ljóst að mikill áhugi er á þjóðaratkvæðagreiðslunni.Fréttastofa náði tali af nokkrum nemendum Háskóla Íslands á Háskólatorgi á dögunum þar sem pallborðsumræður talsmanna já- og nei-hreyfinga fóru fram. Flestir höfðu þegar gert upp hug sinn en aðrir voru enn óákveðnir.Nokkrir sögðu sundrung, hræðsluáróður og upplýsingaóreiðu hafa einkennt umræðuna í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Aðrir sögðu þó ekki of flókið að finna áreiðanlegar upplýsingar upp á eigin spýtur.
Alveg hægt að finna þær upplýsingar sem maður þarf þó að „margir séu að tala með rassgatinu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd