Menn sem eru í haldi erlendis voru á landinu þegar manni var banað á Kársnesi

Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi á Spáni og í Póllandi í tengslum við andlát manns í Kársnesi fyrr í mánuðinum voru á Íslandi þegar manninum var ráðinn bani. Einn situr í gæsluvarðhaldi hér á Íslandi. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á mánudaginn. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.Ráðist var á mann á fimmtugsaldri á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi um miðjan dag 9. ágúst. Hann lést af sárum sínum eftir árásina.Alls voru ellefu handteknir í tengslum við málið hér á landi og tveir erlendis. Fimm voru hnepptir í gæsluvarðhald, þar á meðal mennirnir tveir erlendis. Síðan þá hefur tveimur hér á landi verið sleppt. Ævar Pálmi segist ekki getað tjáð sig um hvort maðurinn sem sitji í gæsluvarðhaldi hér heima sé talinn haf
Menn sem eru í haldi erlendis voru á landinu þegar manni var banað á Kársnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd